Gráðureglur S.K.S.Í.
Um prófdómara:
- Þeim einum er heimilt að gráða nemendur, sem hefur til þess heimild frá S.K.S.Í. og hefur viðurkennt svart belti (Sho-Dan) innan sambandsins. Prófdómarar skulu hafa náð 22 ára aldri og hafa iðkað karate í a.m.k. 6 ár
- Sho-Dan prófdómara er heimilt að gráða nemendur í 3. Kyu
- Tveimur Sho-Dan prófdómurum er heimilt í sameiningu að gráða nemendur í 2. Kyu .
- Ni-Dan prófdómara, sem hefur hlotið viðurkenningu S.K.S.Í. er heimilt að gráða nemendur í 1. Kyu.
- Þeim einum er heimilt að veita karatenemendum Svart belti 1.Dan, sem hefur minnst 3.Dan og að auki þarf slíkur prófdómari viðurkenningu S.K.S.Í., sbr. 1.gr hér að ofan.
- Sá sem brýtur gegn reglum þessum og gráðar ólöglega, skal eftir atvikum sviptur réttindum. Sérstakur dómstóll S.K.S.Í. fer með slík mál.
Um rétt til gráðunar:
- Á milli prófa í Kyu-gráðum skulu minnst líða 3 mánuðir með minnst tveimur æfingum á viku í eigin flokki. Til prófs gilda viku-æfingabúðir jafnt og einn mánuður við æfingar.
- Skv. reglum S.K.S.Í. skulu nemendur mæta a.m.k. 65% í eigin flokk síðustu 3 mánuði fyrir próf.
- Á milli 1. Kyu og 1. Dan skulu líða 6 mánuðir og skulu nemendur vera komnir með full 1. Kyu áður en þeir þreyta próf í Sho-Dan.
- Tímabundnir 1. Kyu skulu bíða í 3 mánuði áður en þeir þreyta aftur próf í 1. Kyu og síðan í 6 mánuði fyrir Sho-Dan.
- Sho-Dan til Ni-Dan æfingatími minnst 2 ár.
- Nemendum sem ætla að þreyta próf er skylt að fá leyfi þjálfara síns til próftöku, ef þeir hyggjast þreyta próf hjá öðrum prófdómara.
- Nemendum
yngri en 14 įra, er einungis heimilt aš taka hįlfa grįšun ķ einu,
unglingagrįšun. Žegar 14 įra
aldri er nįš skulu žeir klįra unglingagrįšun įšur en žeir fį aš
taka heila grįšun, fulloršinsgrįšun.
- Þeir sem byrja æfingar í SHOTOKAN-karate eftir að hafa náð árangri í öðrum Karate-stíl, skulu bera sitt fyrra belti, en eftir 6 mánuði við æfingar skal þeim heimilt að þreyta próf undir sömu gráðu í SHOTOKAN (einnig Dan-gráður).
- Engum skal heimil próftaka, nema hafa áður gert upp æfingagjöld sín.
- Meðlimir sem uppvísir verða að broti á reglum S.K.S.Í. skulu ekki viðurkenndir af S.K.S.Í.
- Nefnd Svartbeltinga, tækniráð S.K.S.Í. skal segja til um hvað sé rétt tækni.