Heimasíða: Helgi Jóhannesson  

Umfjöllun; shotokan karate, karate almennt, keppni, 
dómgæsla og allt annað sem kemur upp í hugann


Breytingar á keppnisreglum í kumite

Það voru gerðar talsverðar breytingar á keppnisreglum WKF fyrir karate og tóku þær gildi 1.janúar á þessu ári.  Við hér heima ákváðum að láta þær taka gildi nú á haustönninni og verður næsta mót haldið með nýju reglunum.  Búið er að taka saman skjal um helstu breytingarnar og eru þær hér í íslenskri þýðingu.  En samt er bent á að lesa reglurnar vel yfir. 

Yfirlit yfir helstu breytingar á keppnisreglum WKF sem tóku gildi í Janúar 2009. 

2.grein;  Dómarar eiga að klæðast ásættanlegum gráum buxum, milli gráar til ljós gráar buxur.  Fyrir hár keppenda; borðar og aðrar skreytingar eru bannaðar. Einföld gúmmíteygja og tagl er leyfilegt. Kadets eiga að nota WKF andlitsgrímur og líkamshlífar (body protector).

 

5.grein Lengd bardaga;  Lengd bardagar eru skilgreindar sem 3 mínútur í karlaflokki (bæði í liðakeppni og einstaklings) en 4 mínútur í úrslita og undanúrslitum.  Bardagar í kvennaflokki eru skilgreindar sem 2 mínútur en 3 mínútur í úrslita og undanúrslitum.  Bardagar í kadet og junior flokkum verða 2 mínútur.  Til aðstoðar dómurum vegna refsinga í Flokki 2, þá verður 30 sekúnda „Atoshibaraku“ aðvörunin gefin þegar 10 sek eru eftir.

 

6.grein Stigagjöf; Búið að einfalda stigagjöfina sem hér segir; Sanbon er gefið fyrir Jodan spörk og skor í liggjandi keppanda, hvort sem hann dettur sjálfur eða er felldur.  Nihon er veitt fyrir Chudan spörk.

Ippon er veitt fyrir Jodan eða chudan zuki, uchi.  Engin snerting leyft hjá kadet og junior í andlit með handatækni (á einnig við um andlitsgrímu) en létt skinnsnerting er leyfð fyrir Jodan spörk.  Fjarlægð fyrir stig er aukin upp í 10cm frá andliti, höfði og hálsi hjá Kadet og Junior. (Fjarlægð ennþá 5 cm. Fyrir 18 ára+).

 

7.grein Viðmið fyrir ákvörðunartöku;  Encho sen er fellt út gildi og Sai Shiai kemur í staðinn.  Sai Shiai er algjörlega nýr bardagi sem stendur yfir í 1 mínútu.  Öll fyrr stig og refsingar verða fjarlægð af stigatöflu. Hæsta stig vinnur eða úrskurður með Hantei.

 

8.grein (og viðauki 3) Ólögleg hegðun;  Við fyrstu atvik þar sem keppandi gerir sér upp meiðsli, þá verður dæmt á hann keikoku og Ippon til mótherja, alvarlegri atvik geta leitt beint til Hansoku Chui eða Hansoku.  Það er mikilvægt að skilja muninn á milli þess að ýkja raunveruleg meiðsli og að gera sér upp meiðsli (sem á að refsa með Shikkaku).  Hættuleg köst.  Það er algjörlega bannað að grípa andsæðing fyrir neðan mitti eða þá að kippa fótum undan þeim.  Öll óleyfileg köst hvort sem það verða meiðsli eða ekki, falla undir refsingar í Flokki 1.  Að flýja bardaga (avoiding combat) vísar í allar þær aðstæður þar sem keppandinn lætur tímann líða þannig að andstæðingur hans hafi ekki tækifæri til að jafna skor.

 

10.grein Meiðsli; Í öllum tilvikum þar sem 10 sekúndu klukkan fer í gang, þá á læknir að skoða fallinn keppenda.  Í þeim tilfellum sem lítil eða engin meiðsli eru til staðar á að veita viðeigandi refsingar.

 

12.grein og viðauki 3; Aðaldómari (Referee) getur ekki lengur óskað eftir að aðstoðardómarar endurskoðun ákvarðanir sínar.  Þegar Aðaldómari kallar „Yame“ þá eiga aðstoðardómarar að taka flögg sín til baka og bíða þar til Aðaldómari fer aftur á sinn stað.  Aðaldómari gefur þá til kynna ástæðu þess að bardagi er stöðvaður og aðstoðardómara gefa þá til kynna sína skoðun. Aðaldómari gefur þá til kynna skoðun meirihlutans. Merki aðstoðardómara um Mienai er ekki lengur notað.  Tími sem leyfður er fyrir köst eða tækni eftir grip, köst er minnkaður niður í 2 sekúndur.

Að standa brjóst í brjóst falla einnig inn í Refsingar í Flokki 2.

 

KATA; Fimm dómarar verða notaðir.  Í liðakeppni þá á að sýna Bunkai í úrslitum og undanúrslitum.  Við Hantei þá á Aðaldómarinn að láta dómara halda flöggum uppi í 5 sekúndur.

 

 Skrifað 8.október 2009
-----------------------------------

LEIÐARLOK HJÁ MÉR, 28 ÁR Í ÆFINGUM OG KENNSLU

Jæja, þá er komið að ákveðnum leiðarlokum hjá mér.  Ég hef tekið þá ákvörðun að taka mér hvíld frá þjálfun/æfingum á karate vegna meiðslna, en læknir minn segir að ég verði að breyta um áherslur ef ég vilji hafa not fyrir hægri hendina á mér í framtíðinni.  Ég er með liðbandaáverka sem hafa verið að ágerast í gegnum tíðina og hafa verið að valda mér stöðugum verkjum í hnúum síðustu ár.  Ég á erfitt með að kreppa hnefann í langan tíma án þess að það kosti mig verki, ég sé ekki hvernig ég muni kenna ef ég get ekki kreppt hnefann án þess að skaða hann meira eða þá að sleppa því alveg að kýla í einhvern/púða með hægri hendi sem ég má helst ekki gera, ég má ekki fá högg á hnefann.  Af þessum sökum legg ég þjálfun á hilluna, því þeir sem hafa æft með mér vita að ég á erfitt með að breyta kennsluháttum þannig að ég væri bara óvirkur þjálfari sem stæði úti í horni og segði til.  Ég hef alltaf haft þá skoðun að þjálfari eigi að geta gert þá hluti sem hann vill að nemendur framkvæmi því annars er erfitt að kenna karate, maður verður að sýna tækni og virkni þeirra sem slíka.  Ég á erfitt með að hemja mig þegar ég er kominn af stað í kennslu, ég hef svo gaman af henni, að áður en ég veit af er ég búinn að kýla og þá fæ ég verki. 

Því miður þá er þetta raunin, en ég er mjög sáttur við það sem ég hef verið að gera síðustu ár og tekið þátt í að byggja upp öfluga karatedeild hjá Breiðabliki.  Árangurinn í svartbeltagráðuninni í apríl sýnir uppskeru okkar.  Frá því að ég kom aftur til Breiðabliks 2002 (var áður 1986-1992) þá hafa 21 félagsmenn í Breiðablik tekið svart belti, ásamt því að ég og Einar hafa bætt við okkur gráðun.  Einnig hefur Breiðablik hlotið fullt af titlum á þessum tíma sem er mjög skemmtilegt. 

Ég vona samt að ég geti komið eitthvað að þjálfun í framtíðinni þrátt fyrir að ég hafi ekki útfært það nánar, en eins og margir vita þá er ég mikill áhugamaður um keppniskarate nokkuð sem ég vil geta þjálfað áfram.  Hluti af því var t.d. hjá okkur í breiðablik þegar við stofnuðum sérstakan meistaraflokk unglinga til að gefa þeim hópi betri gaum því flest þeirra eru að horfa á keppni og/eða á svart belti, sem reyndar 7 úr þeirra hópi tóku svartbelti núna í apríl með mjög góðri frammistöðu. 

Ég mun samt halda áfram að starfa í tengslum við karate, allavega dómgæslu enda kominn með mikla reynslu í því eftir að hafa dæmt í um 15 ár.

Meira seinna um dómgæslu og þær breytingar á keppnisreglum sem hafa orðið þar.
 
Skrifað 13.júní 2009
-----------------------------------

Glæsilegur árangur og 11 til viðbótar með svart belti

Það var glæsileg sjón sem við sáum um síðustu helgi þegar 11 félagar í Breiðablik fengu svarta beltið (1.dan), eftir að hafa staðist gráðun hjá Sensei Kawasoe.  Við byrjuðum á þessum ferli í desember þegar við héldum sérstakar æfingar fyrir þá nemendur sem komu til greina í þessa gráðun, en að sjálfsögðu höfðu allir stefnt að þessum áfanga allt frá því að þau tóku 1.kyu gráðun sína.  Sú ákvörðun að hafa sér æfingar og gefa persónulegar ábendingar tel ég að hafa skilað sér áfram til nemenda, en við gáfum þeim ábendingar amk 3 á þessum tíma, eftir þessar sér æfingar.  Það er langt síðan ég hef verið svona stoltur kennari eins og ég var um helgina að geta skilað svo stórum hópi nemenda í gráðun og að allar hafi gert það sem fyrir þeim var lagt.  Árangurinn var eftir því. 

Það er mikill styrkur fyrir Breiðablik að geta skilað slíkum fjölda nemenda upp í meistaragráðu en frá því 2005 þá hafa í heild 20 einstaklingar fengið 1.dan, 1 árið 2005, 3 árið 2007, 5 árið 2008 og síðan 11 nú um síðustu helgi.  Þetta sýnir vel það starf sem fer fram í deildinni og tel ég að öllum öðrum ólöstuðum að Maggi hafi lagt grunninn að þessu ævintýri okkar þegar hann byrjaði að kenna í deildinni fyrir um 8-9 árum síðan, eftir að hún var endurreist.  Síðan höfum við Einar fengið að taka þátt í þessu með honum og borið meiri þunga seinni árin. 

Fyrir mig þá er þetta mjög ánægjulegur endir á þessum vetri og raun endir á lengri leiðangri sem ég skýri betur frá síðar.  Ég get sagt að deildin eigi bjarta framtíð með svo marga glæsilega fulltrúa eins og svartbelta hópurinn er orðinn núna. 

Til hamingju með svarta beltið krakkar, þið eigið það svo sannarlega skilið.


Efri röð; Magnús, Svanbjörn, Arnar Freyr, Gunnlaugur, Sigríður María, Sensei Kawasoe, Helgi, Einar
Neðri röð; Ragnar, Víðir Snær, Gunnlaugur Helgi, Heiðar, Birkir.  Á myndina vantar Jón Andra og Bryndísu.
 
Skrifað 9.apríl 2009
-----------------------------------

Þátttaka í mótum - hvað skilar það sér til nemenda?

Flestir sem þekkja mig vita hvaða skoðun ég hef á keppnum.  Ég hef ávalt verið mjög fylgjandi því að nemendur taki þátt í öllum þeim mótum sem þeir hafa aðgang að.  Ég er þeirrar skoðunar að það styrkir þau sem karateka að taka þátt í keppnum og gera sitt besta.  Enda keppti ég sjálfur í um 25 ár, ef ég man rétt þá var fyrsta keppnin mín 1982 og sú síðasta 2007.  Ástæðan er einföld, maður veit ekki hvort maður nær árangri nema að prófa, of margir eru ragir við að keppa því þeir telja sig ekki ná árangri og af þeim sökum þora þeir ekki að reyna.  Mín skoðun er einnig sú að það styrkir nemendur sem karateka að taka þátt í keppnum, þau hafa þá ákveðin markmið til að stefna að, æfingar þeirra verða markvissari og þau fara horfa betur á hin ýmsu smáatriði í sínu karate sem þau e.t.v. hefðu ekki gert ella.  Skýrasta dæmið um það er keppni í kata en ég sé bein tengsl á milli þeirra sem leggja keppni fyrir sig í kata og árangri þeirra varðandi gráðanir, þar sem kata og kihon eru jú mjög tengd. 

Breiðablik átti um 40 krakka og unglinga á Íslandsmeistaramótinu í kata í gær og náðum við fínum árangri í mörgum flokkum.  Við lentum í öðru sæti yfir heildina sem er nokkuð gott, en fyrir mig sem liðstjóra og þjálfara var stærsti sigurinn að sjá krakkana fara út á gólfið, klára sína kata eins og lagt var upp með.  Það sem var ennþá skemmtilegra var að sjá ánægjuna hjá krökkunum þegar þau voru sátt við sjálfa sig þó svo að þau hafi e.t.v. ekki unnið í þeirri viðureign, því megintilgangurinn var að sigra sjálfan sig með því að fara út á gólfið og klára sína kata. 

Það er sigurinn sem við viljum sjá og í lok dagsins stöndum við því öll uppi sem sigurvegarar.
 
Skrifað 16.febrúar 2009
-----------------------------------

Virðing fyrir andstæðingnum

Ég væri nú örugglega að svíkja sjálfan mig ef ég setti ekki nokkrar línur niður á blað um kumitemótið síðasta laugardag (1.nóv).  Mótið í heild sinni gekk vel ef frá er að telja leiðindaframkoma eins keppenda enda fékk sá einstaklingur viðeigandi refsingu „shikkaku“ fyrir óíþróttamannslega framkomu.  Reyndar voru það fleiri en viðkomandi sem sýndu leiðinlega hegðun, svo eftir var tekið af dómurum, en það er ávalt matsatriði hvenær hegðun fer út fyrir mörkin hverju sinni.  En það er ekki einungis keppendur sem þurfa að skoða hegðun sína, þjálfarar/liðsstjórar voru einnig með leiðinlegar athugasemdir og jafnvel áreiti á andstæðinginn.  Ég hef aldrei skilið af hverju einhver þarf að upphefja sjálfan sig á kostnað annarra, ef við tökum t.d. liðstjóra sem eru með sínum keppendum, þá vil ég spyrja; „bætir þú þinn keppanda og hjálpar honum með niðrandi ummælum um andstæðing hans?“  og einnig „er slík hegðun í anda karate-do sem við eigum að fara eftir í keppnum?“.  Ég veit að margir svara því til að þeir verða svo æstir þegar keppni á sér stað að þeir gleyma sér.  En myndum við sætta okkur við slík viðbrögð frá keppendum?? Ég held ekki, en af hverju eigum við að sætta okkur við það frá liðsstjórum, ég tel svo ekki vera.  Alla vega geri ég það ekki.  Starf dómara er ekki auðvelt starf og aðstæður sem þessar þegar jafnvel vinir dómarans eru liðsstjórar sem haga sér ósæmilega eru mjög erfiðar viðfangs.  Það þarf oft hugrekki til að taka ákvarðanir sem jú eru í anda þeirra keppnisreglna sem við viljum fara eftir.
               Að auki er leiðinlegt að heyra niðrandi ummæli frá áhorfendum sem styðja eitt félag gagnvart keppinautum sínum, en slík ummæli féllu því miður á laugardaginn og voru áhorfendur/stuðningsmenn eins félagsins nokkuð áberandi í því tilfelli.  Það skiptir ekki máli þó svo að keppinauturinn hafi brotið af sér inn á vellinum, það eru hlutir sem dómarar taka á, það getur aldrei réttlætt neikvæð og niðrandi ummæli gagnvart keppnisfólki okkar, sama í hvaða félagi það er.  Við hljótum að vilja sjá drengskap í keppnum, bæði innan vallar sem utan.
 
Gagnkvæm virðing á milli keppenda og fulltrúa þeirra er undirstaða þeirrar íþróttar sem við stundum, keppni á að fara fram í anda karate-do.  Margir vilja gleyma því.
 
Af hverju ætti ég að fara eftir reglum, er ég ekki yfir þær hafinn??
Annað atriði sem ég er mikill talsmaður fyrir er virðing fyrir reglum.  Við leggjum hart að keppendum að fara eftir þeim ásamt dómurum.  Það birtist fyrst í að keppendur séu rétt klæddir skv. reglum sem og dómarar.  Það er að takast nokkuð vel hjá okkur enda fleiri og fleiri dómarar sem eiga réttan klæðnað, en þá eru blessaðir liðstjórarnir eftir.  Því miður þá virðast sumir þeirra ekki skilja að reglurnar eiga við þá einnig en ekki bara um keppendur/dómara, þeir telja sig vera hafna yfir þær bæði með yfirbragði og ummælum sem þeir láta í ljós.  Það gildir engu þó svo að þeim hafi verið bent á þessi atriði á síðustu mótum og sagt að hart verði tekið á þessum atriðum á næstu mótum.  Alltaf koma þeir af fjöllum, það mætti halda að sumir liðsstjórar lesi ekki keppnisreglur WKF sem við förum eftir.  Þeir mæta klæddir eins og þeim sýnist og hafa uppi mótmæli þegar dómarar ganga eftir reglum, nokkuð sem er ekki líðandi að mínu mati. 

Allavega þá er ég búinn að koma þessu frá mér enda er það mín sýn að við eigum að fara eftir öllum þeim reglum sem WKF keppnisreglurnar segja til um.
 
Skrifað 3.nóvember 2008
-----------------------------------

Frábær árangur hjá Breiðablik- Íslandsmeistarar félaga í kumite

Rosalega var gaman að fylgjast með árangri keppendanna okkar frá Breiðabliki á kumitemótinu síðasta laugardag.  Þetta er besti árangur félagsins í háa herrans tíð eða allt frá dögum Ævars sem stofnaði deildina fyrir hart nær 20 árum, hann náði amk tvisvar að vera tvöfaldur meistari í kumite ef ég man rétt.  Við höfum náð þó nokkrum titlum í gegnum tíðina í kumite en þetta er í fyrsta sinn sem einhver frá Breiðablik verður þrefaldur meistari á sama mótinu, en þeim árangri náði Guðrún Óskarsdóttir núna á laugardaginn.  Einnig var gaman að stelpurnar náði að verja íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni enda lagði það grunninn að heildarsigri okkar á mótinu.  Ég vil óska keppendum innilega til hamingju með árangurinn sem er stórglæsilegur.  Ég bendi á myndasíðu karatedeildarinnar sem er;  www.123.is/karate


Hér má sjá mynd af keppnisliðinu með sigurverðlaunin.

Skrifað 2.nóvember 2008
-----------------------------------

Virkni í tæknum

Eitt af því sem við þjálfararnir höfum mikið verið að ræða um er virkni í tæknum.  Það er ekki nóg að æfa tæknir stöðugt sem kihon (grunntæknir) án þess að sjá hvort þær myndu þá virka gegn andstæðingi, karate er jú sjálfsvarnaríþrótt.  Þetta á sérstaklega við þegar nemendur eru komnir með 4.kyu og yfir, þá er ríkari áhersla lögð á bætingu í tæknum enda kumite orðið þá stærri hluti af þeim kröfum sem gerðar eru til nemenda t.d. varðandi gráðun.  Þegar við þroskumst í karate þá þurfum við að horfa út fyrir kassann sem okkur kennt í byrjun, sjá hvernig tækni sem er kennd á ákveðin máta getur hentað í öðrum aðstæðum eða þá með annarri útfærslu heldur en hugsað var um í byrjun.  Lítið dæmi um þetta er t.d. age uke sem er kennd sem höfuðvörn, en í raun getur age uke verið árás á háls sbr. það sem við sjáum í síðustu skrefunum í kata heian nidan. 

Ágætis dæmi um umbreytingar á kihon tækni með virkni er ein stutt flétta sem við notum oft í kihon, en það er kizamezuki-oizuki-gyakuzuki.  Í kihon er hún framkvæmd þannig að við stöndum í zenkutsudachi og kýlum kizame, stígum svo fram og kýlum oizuki-gyakuzuki í einu skrefi.  Ef við förum með þessa sömu tækni og bætum virkni við hana, þá myndum við til að byrja með nota yori ashi um leið og við kýlum kizamezuki, stígum svo fram oizuki en áður en gyakuzuki er framkvæmt þá stígum við tsugi ashi til að auka við fjarlægð.  Með þessum viðbótum þá erum við komin með flot í tæknirnar sem þá svífa betur áfram og virkni kemur þá skýrar fram.  Um leið er þessi flétta orðin mjög góð fyrir kumite enda mikið notuð reyndar með ýmsum útfærslum.  Blanda af þessari fótavinnu, færa fremri fót fyrst (yori ashi) eða aftari fót fyrst (tsugi ashi) er mikið notuð og oft jafnvel í sama skrefi, allt eftir því hver fjarlægð í andstæðing er.  Það er í raun ekki hægt að segja til um hvort skrefið henti betur því það fer eftir aðstæðum hverju sinni.  En ef við horfum t.d. á keppnisfólk í kumite þá sjást ýmsar útfærslur á þessari fótavinnu. 

Annað dæmi má nefna um einstakar tæknir s.s. mawashigeri en í grunninn er sparkið hugsað þegar fjarlægð er ca ein fótlengd á milli einstaklinga (gróft á litið), t.d. sjáum við það mikið notað í kumitekeppnum.  En hvernig getum við þá brugðist þegar við lendum í aðstæðum þar sem fjarlægð er lítil t.d. er haldið í okkur og við náum ekki að virkja hendurnar.  Þá eigum við eftir fæturnar og þá er mjög gott að nota t.d. hiza geri með mjaðmarhreyfingu eins og notuð er í mawashi geri.  Þetta er ekki ósvipað því og ég hef farið í á æfingum í Breiðablik, að hugsa um tækni út fyrir þann ramma sem henni er venjulega settur.  Í þessu dæmi gætum við nýtt okkur mjaðarhreyfingar úr mawashi og farið með hné annað hvort í fætur eða búk andstæðingsins.  Virknin er ennþá til staðar úr grunntækni okkar með því að nýta okkur þá kunnáttu í aðstæðum sem við að öllu jöfnu æfum okkur ekki í. 

Alla vega eru þetta pælingar sem ég kasta hér með út í loftið, takið þeim eins og þið viljið.

Skrifað 28.október 2008
-----------------------------------
Upplýsingar um grunntæknir og kata í „hægum“ gangi

Ég minni á að hér til hliðar má sjá tengla inn á undirsíður sem sýna ýmsar grunntæknir í shotokan karate, tenglar inn á síðuna eru;  Byrjendur og Grunntæknir.  Ég útbjó á sínum tíma einnig smá video af hverri grunntækni til að sýna hvernig ég myndi framkvæma hana, en gott er að hafa videoin til hliðsjónar, þau eru hér >Video kihon.  Einnig hef ég skrifað upp lýsingar á kata, sjá hér> Kata, sem eiga að hjálpa byrjendum að læra fyrstu kata sem kenndar eru í shotokan karate.  Bæði lýsingarnar og videoin af kata eru til að kenna sporin en ég vísa í kennslutíma til að læra réttan takt og hvar áherslur eru í hverri kata fyrir sig.  Í videoum þá gerði ég kata vísvitandi mjög hægt til að sýna hverja tækni fyrir sig en ekki eins og framkvæma á kata þegar hún er gerð á fullum krafti.  

En á endanum er það með karate eins og margt annað, æfingin skapar meistarann.  Við getum lesið margar bækur, horft á mörg video til að fræðasta meira um karate og læra einstakar tæknir, en á endanum er það æfingin sjálf sem gefur manni það sem þarf til að ná árangri.  Við í Breiðablik höfum góða kennara sem eru búnir að vera að æfa í mörg ár og við að okkur mikilli reynslu. 

Enn og aftur ef það er eitthvað sem þið viljið sjá á þessari síðu eða viljið fá nánari útskýringar á einhverju atriði þá endilega kastið á mig línu á helgi  @  helgi.net, að sjálfsögðu ekki með neinu bili hjá @ merkinu.

Skrifað 16.september 2008
-----------------------------------
Hvað er það sem þú vilt fá út úr þinni karateþjálfun??

Við erum að koma á æfingar út frá mismunandi forsendum, allt eftir því hvað óskir og væntingar við höfum.  Það eina sem ég hef í raun beðið um hjá þeim sem æfa hjá mér er að þeir leggi sig allan fram og reyni sitt allra besta í hvert sinni sem þeir koma í salinn.  Mér er í raun sama hvort fólk er að æfa karate sem líkamsrækt, er að stefna á næsta belti eða þá æfir með keppni í huga.  Eini munurinn er sá hvaða áherslur viðkomandi leggur á í sínum æfingum.  Eins og flestir vita þá hef ég ávalt verið mjög keppnissinnaður en það eru mínar áherslur varðandi mitt karate og auðvitað hefur það smitast út í mína kennslu.  Ég hef þó ávalt gætt þess að virða óskir þeirra sem ekki eru á sömu línu og ég varðandi keppnir því mín trú er að virðing fyrir valkostum annarra er mjög mikilvæg. 

Ég tel það mikilvægt að fólk ákveði mjög fljótt hvaða stefnu það vill taka með sitt karate því auðvelt er að beina nemendum í þá átt sem þeir óska með réttum æfingum og/eða aukaæfingum ef t.d. keppni verður fyrir valinu.  Það sama á við um hefðbundnar æfingar, því hægt er að æfa keppniskarate á sama tíma og hefðbundið karate jafnvel með sömu æfingunum en með þá mismunandi áherslum annað hvort í takti eða hraða á milli einstakra tækna.  

Virðing fyrir öðrum og óskum þeirra er hluti af því sem karate á að byggjast á.  Það er ekkert leiðinlegra en að sjá eða hlusta á aðra tala niður til fólks þó svo að þeir séu ekki á sömu línu.  Ef nemandi vill t.d stefna að keppni í kata og þarf að breyta útfærslu sinni til að kata falli betur að þeim leikreglum sem gilda í keppnum, þá á að virða þær óskir og styðja við nemandann.  Það sama á við um kumite, ef keppandi vill taka þátt í keppniskumite sem er frábrugðið hefðbundnu shotokan kumite, þá á að styrkja hann með viðeigandi æfingum. 

Hlutverk okkar sem eru að þjálfa er að styrkja nemendur í því sem þeir óska að taka sér fyrir hendur, hvort sem við erum á sömu línu og þeir eða ekki.  Því markmið okkar allra hlýtur að vera styrking á eigin persónu í gegnum karate.

Skrifað 12.september 2008
-----------------------------------
Ein tilraun í viðbót við að halda vefnum lifandi

Jæja, ég ætla að gera eina tilraun enn til að halda vefnum lifandi.  Ég hef ekki uppfært hann í ca 1 ár, en það stafar af því að ég skipti um vinnu og nennti ekki að setja upp ftp forrit og slíkt til að koma skrifum af stað.  En núna er ætlunin að halda skrifum áfram og reyna að koma einhverju vitrænu á blað.  Það hefur mikið gerst á þessu eina ári sem ég ætla ekki að telja upp núna, en sjáum til hvað ég nenni að skrifa á vefinn næstu vikur.  Þetta er allavega byrjunin.

Skrifað 5.ágúst 2008
-----------------------------------
Tvöfaldur Íslandsmeistari - Síðasta keppnin

Um helgina þá varði ég íslandsmeistaratitilinn í kata ásamt því að við í breiðablik vörðum titilinn okkar í hópkata.  Ég varð sem sagt tvöfaldur meistari núna um helgina og er að sjálfsögðu mjög sáttur við þá útkomu.  Ég hef reyndar sagt það áður en í þetta sinn mun það standa, þetta mót var mitt síðasta og nú er ég hættur keppni.  Ég er mjög sáttur við þá ákvörðun enda hef ég náð því sem ég hef viljað, það er að hætta með meistaratitil.  Í úrslitum í einstaklingskata mætti ég félaga mínum úr breiðabliki, Einari Hagen, en í úrslitum í hópkata mættum við Einar og Magnús strákunum í Haukunum með Gunna fremstan í flokki.  Keppnin var að mörgu leyti harðari í ár og því sigurinn sætari fyrir vikið.  Við í Breiðablik urðum í 2 sæti í stigakeppni félaga urðum 1 stigi á eftir þórshamri, það vantaði ekki mikið svo við myndum ná að vinna eins og í fyrra, samt er ég mjög ánægður með þann árangur því það eru ekki mörg ár frá því að Breiðablik var ekki að fá mörg stig á mótum en það hefur breyst síðustu árin.  Ég á án efa eftir að fá nettan fiðring eftir 1 ár þegar næsta íslandsmeistaramót verður sérstaklega þegar ég fer að undirbúa keppendur í Breiðablik fyrir keppnina.  Verst þykir mér að hætta keppni í hópkata sem ég hef mjög gaman af, það verður spennandi að sjá hvern þeir Einar og Magnús fá með sér í lið að ári, ég er strax kominn með ákveðinn einstakling í huga.  Ég hef gaman að segja frá því að ég hef unnið hópkata í átta ár í röð frá árinu 2000 og þar af 3 síðustu árin með Breiðablik.  Ég er mjög ánægður með þann árangur. 

Íslandsmeistaratitill í höfn - 2 árið í röð

Síðasta keppniskata í framkvæmd - Sochin

Íslandsmeistarar í hópkata 3 árið í röð

Ég læt 3 myndir fylgja með sem ég fékk að láni frá myndasíðu Breiðabliks (www.123.is/karate) og frá Birki í Þórshamri (www.hiddenhaitostyle.com). 

Skrifað 17.apríl 2007
-----------------------------------
3 svartbeltingar til viðbótar í Breiðablik
 
Í byrjun mánaðarins fóru 3 nemendur hjá okkur í dangráðun hjá seinsei Kawasoe og stóðust með sóma.  Það er mikið skref fyrir hvern einstakling að fá svart belti og er ég mjög ánægður með þessa einstaklinga enda hafa þeir lagt hart að sér til að ná þessum árangri.  Til hamingju með þetta Eyþór, María og Björg.  Í heildina erum við þá 7 svartbeltingar sem eru að æfa núna í breiðablik og er það mesti fjöldi sem hefur verið af svarbeltingum hjá félaginu.  Fyrir utan þau 3 sem voru að fá dangráðun um daginn, þá eru þetta Karl 1.dan, Magnús 2.dan, Einar 4.dan og ég 4.dan.  

Ég læt fylgja með eina mynd sem ég fékk að láni frá Jóni Andra.

Helgi, Björg, Eyþór, María, Einar

Skrifað 11.apríl 2007
-----------------------------------
Stoltur Þjálfari - Breiðablik unglingameistari félaga í kata

Í dag var haldið unglingameistaramótið í kata og er skemmst frá því að segja að Breiðablik varð unglingameistari félaga.  Við fengum 3 gull, 1 silfur, 6 brons og 24 stig í heildina.  Þessi árangur er betri en ég hafði vonað fyrirfram, ég hafði gert mér von um einhver verðlaun, jafnvel meistaratitil en ekki 3 titla og nafnbótina Meistari félaga.  Við sendum 17 keppendur og 12 þeirra komu heim með verðlaun.  Ég er virkilega stoltur af unglingunum sem gerðu öll saman frábærar kata og voru félaginu til mikils sóma.  Þau gerðu það sem við þjálfararnir báðum þau, að leggja sig allan fram, og uppskáru eftir því.  

TIL HAMINGJU KRAKKAR, ÞETTA ER FRÁBÆR ÁRANGUR HJÁ YKKUR.  

Flottur hópur með verðlaunin sín.

Skrifað 11.mars 2007
-----------------------------------

Framkoma við dómara - hvenær má liðsstjóri kvarta undan dómurum

Á síðustu mótum hef ég orðið vitni að eða lent í að liðsstjórar hafa viljað ræða við dómara um einstaka viðureignir eða úrskurði sem þeir kveða upp um þegar tveir keppendur eigast við.  Við erum fá hér á landi sem eru í framlínunni við karatekennslu eða í dómgæslu og þekkjumst flest öll ágætlega.  Oft eru það jafnvel hátt gráðaðir og virtir einstaklingar sem eru liðsstjórar, einstaklingar sem hlustað er á.  Í krafti þess virðist sem þeir taka sér það bessaleyfi að "ræða" við dómara um einstaka atburði þar sem þeir eru ekki sáttir við útkomu viðureignarinnar.  Persónulega finnst mér þetta oft á tíðum fara of langt og að liðsstjórar gangi á lagið til heimta útskýringar frá dómurum vegna kunningsskapar.  Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort þessi staðreynd hafi jafnvel þau áhrif að margir forðist dómgæslu þar sem þeir vilja ekki lenda í að "útskýra" eða rökstyðja ákvarðanir sem þeir taka sem dómarar fyrir liðsstjórum sem eru jafnvel hærra gráðaðir heldur dómararnir.  Nokkuð sem dómarar eiga ekki að þurfa að gera.  

Í þessu samhengi skulum við skoða hvað stendur í reglum WKFt; 
Þegar dómararáð útskýrir ástæður dóms eftir keppni, mega þeir gera það við yfirdómara, dómaranefndina, eða áfrýjunardóminn. Þeir útskýrir þær fyrir engum öðrum (12.grein).
Þetta þýðir á góðri íslensku, að samkvæmt reglunum eiga dómara ekki að ræða úrskurði við einn né neinn fyrir utan yfirboðara.  Þeir eiga sem sagt ekki að ræða einstaka úrskurði né viðureignir við þjálfara né liðsstjóra.  Ég hef sjálfur stundum gert undantekningar þegar koma upp atvik þar sem túlka þarf keppnisreglurnar og ég sé að bæði keppendur og liðsstjórar vita í raun ekki hvað hafi gengið á.  Ég vil skýra það með því að liðsstórar þekki ekki keppnisreglurnar nægjanlega vel því oft koma dómar eða úrskurðir þeim á óvart.  

Ég hef verið ákafur talsmaður fyrir því að sem flestir komi á dómaranámskeið til að læra þær reglur sem við förum yfir, jafnvel þó svo að viðkomandi ætli sér ekki að fara út í dómgæslu.  Það er mjög mikilvægt að þjálfarar og liðsstjórar þekki reglurnar svo þeir geti aðstoða keppendur sína á sem besta máta við undirbúning.  Það á ekki að eiga sér stað á mótum þegar dómarar eru að beita þeim reglum sem þeim ber að gera.  

Það er ástæða fyrir því að ég set þessi orð á síðuna því mér finnst sumir liðsstjórar ganga of langt í að "ræða" málin.  Ég segi nú er nóg komið.  Leyfum dómurum að vinna sín verk. 

Skrifað 11.mars 2007
-----------------------------------
Video - loksins


Þá hef ég loksins sett videoin inn á síðuna.  Ég hef tekið upp video af nokkrum grunntæknum, en þessi myndskeið hef ég sett inn á sér síðu sem hægt er að sjá hér til hliðar, "Video kihon".  Tilgangurinn með þessum myndskeiðum er að sýna grunntæknir í shotokan karate eins og ég geri þær.  Bæði eru þessar tæknir í Heiko dachi en einnig í öðrum dachi eftir því sem við á, s.s. zenkutsudachi, kibadachi og kokutsudachi.  Ég hef einnig sett inn video af kata þar sem ég framkvæmi kata m.t.t. að hægt sé að læra af þeim.  Hraðinn er minni heldur en þegar við gerum kata í kennslutímum svo það verður að horfa til þess þegar horft er á þessi myndskeið.  Ég setti þetta inn á sömu síðuna og lýsing á einstökum kata er, sjá hér "kata".  


Skrifað 28.janúar 2007
-----------------------------------
Ekki tekst mér að halda loforðið um að uppfæra síðuna mína nógu ört.  Reyndar er ég tilbúinn með ýmislegt videoefni en ætlaði að nota ákveðna útfærslu við að birta það en það reynist ekki möguleg eins og staðan er núna.  Síðasta laugardag þá var íslandsmeistaramótið í kumite haldið og ég keppti aftur eftir 10 ára hlé.  Það var þó nokkuð gaman en frekar erfitt.  Ég var búinn að gleyma því hvað 3 mínútur eru í raun langur tími og djö.. hvað þetta var orðið erfitt í lokinn.  Samt er ég ánægður með hvað ég var að gera m.v. að ég hef ekki keppt í kumite í 10 ár og í raun ekki æft það að ráði, en ég fékk þó 4 bardaga sem var ágætt.  Ég er mjög ánægður með hvað við sendum marga keppendur, við vorum 9 í heildina sem tókum þátt og höfðum 1 gull, 1 silfur og 4 brons upp úr krafsinu.  Reyndar var mótið ekki nógu gott hvað meiðsli varðar og þarf ég að horfa um 20 ár aftur í tímann til að muna eftir móti sem hafði svona mikið af slysum, reyndar er það efni í góðan fyrirlestur.  Það virðist því miður að of margir keppendur eru að koma illa undirbúnir á mótin og reyna að keyra á orku og jafnvel reiði.  Það vantar meira af tækni í keppendur og þegar þær vantar þá koma slysin.  

Ég læt 4 myndir fylgja með sem ég fékk að láni frá myndasíðu Breiðabliks


Gengið sem tók þátt í mótinu fyrir Breiðablik                        Skytturnar þrjár sem voru í karlasveitinni, flottir karlar!!!


10 ára keppnishlé í kumite er lokið og ballið byrjað.            Hér er sko karlinn í stuði og búinn að ná hinum niður.

Skrifað 14.nóvember 2006
-----------------------------------
                                                                    25 ára æfingarafmæli

Þá er kominn tími til að endurnýja skrifin á þessari síðu minni, ég hef hvílt þau síðan í vor eftir íslandsmeistaramótið í kata.  Dagurinn í dag, 14.september er nokkuð sérstakur í mínum huga þar sem þetta er sá dagur þegar ég mætti á mína fyrstu karateæfingu fyrir um 25 árum.  Ég á sem sagt 25 ára æfingarafmæli í dag, nokkuð sem ég átti svo sannarlega ekki von á þegar ég byrjaði í karate.  Það hefur svo sannarlega margt gerst á þessum tíma enda spannað meirihluta æfi minnar.  Ég tel mig hafa náð góðum árangri í karate ef ég horfi til keppni þar sem ég hef verið að keppa nánast allan þann tíma sem ég hef æft.  Fyrstu verðlaunin hlaut ég 1982 í unglingaflokki og þau nýjustu eru frá því í apríl 2006 þegar ég varð íslandsmeistari í kata karla.  Yfir heildina hafa þetta verið 29 gull, 28 silfur og 11 brons, alls 43 verðlaun fyrir kata og 25 verðlaun fyrir kumite.  Verðlaunin hafa verið mestmegnis frá íslandsmeistaramótum og shotokanmeistaramótum en einnig verðlaun frá norðurlandameistaramótum.  

Ég hef verið það lánssamur að hljóta nokkrar viðurkenningar í gegnum tíðina og þykir mér mjög vænt um þær.  Viðurkenningar sýna hug annarra til okkar og þeirra verka sem maður hefur sýnt.  Ég hef fengi viðurkenningar frá Kópavogsbæ, UMSK, Breiðablik, Karatesambandinu og Þórshamri.  Vænst þykir mér þó nafnbótin "Íþróttamaður Kópavogs" sem ég hlaut fyrir árið 1989.  Ofarlega er einnig viðurkenningin sem ég hlaut 1989 þegar ég var valinn "Afreksmaður Breiðabliks".  

Ég hef verið mjög heppinn með hvað mér hefur verið treyst til að kenna og gefur það mér mikið gildi í mínu karate í dag.  Ég tel mig hafa margt að gefa af mér og það veitir mér mikla ánægju þegar ég næ til þeirra nemenda sem ég er með hverju sinni.  Síðustu árin hef ég einnig verið að sinna dómgæslu bæði hér heima og erlendis en ég er núna með evrópuréttindi til að dæma kumite.  

Á næstunni mun ég uppfæra síðurnar þar sem ég hef verið að lýsa grunntæknum í shotokan karate ásamt því að bæta við videomyndum af þeim tæknum.  

Skrifað 14.september 2006
-----------------------------------

Ég get ekki annað sagt en að ég sé ánægður með gærdaginn, ég varð tvöfaldur íslandsmeistari í kata og að auki varð Breiðablik íslandsmeistari félaga.  Þetta er nokkuð sem við áttum ekki von á.  Við Maggi mættumst í úrslitum í einstaklingskata og síðan mættust tvö breiðablikslið í úrslitum í hópkata karla, ég, Maggi og Einar á móti Pálmari, Eyþóri og Jón Andra.  Það var líka gaman að við vorum 15 sem kepptum frá breiðablik og 12 okkar fórum heim með verðlaun, félagið fékk 2 gull, 2 silfur og 2 brons á mótinu, allt þetta gaf okkur 19 stig en næsta félag á eftir fékk 10 stig.  Þetta er í fyrsta sinn sem Breiðablik verður íslandsmeistari félaga í kata.  

Það eru 16 ár síðan ég vann einstaklingskata síðast en ég var að taka þetta saman og eru þetta 15 íslandsmeistaratitill minn í karate (12 í kata og 3 í kumite), nokkuð sem ég er sáttur við.  Eftir að keppnisfyrirkomulagið var breytt árið 2002, þannig að keppt var eftir útsláttarkerfi þá hef ég fengið verðlaun bæði í einstaklings sem og hópakata fyrir utan 2004 þegar ég varð í fjórða sæti í kata einstaklings.  Þetta eru orðin 6 gull, 1 silfur og 2 brons í þessi 5 skipti.  

Skrifað 2.apríl 2006
-----------------------------------
Þá er komið að því, ÍM í kata er á næstunni og ég hef ákveðið að slá til og keppa í eitt skiptið enn.  Merkilegt því ég held að ég hafi sagt síðustu árin að "þetta" mót eigi að vera síðasta mótið, en svo kemur að næsta móti og ég er til í slaginn.  Á meðan ég tel mig geta framkvæmt kata sómasamlega þá held ég áfram.  Ég hef bætt lýsingu á Tekki Shodan við á Kata síðunni minni, þannig að þetta eru þá orðnar 7 kata sem ég er með lýsingu á.  Seinna bæti ég við ljósmyndum af kata þar sem ég ætla að taka myndirnar í sömu röð og lýsingarnar mínar eru.  Ég mun að öllum líkindum bæta Bassai Dai og Jion við en láta svo staðar numið.  

Skrifað 25.mars 2006
-----------------------------------
Loksins er ég byrjaður að uppfæra lýsingar á kata.  Ég er búinn að bæta Heian Yondan og Heian Godan við fyrir lýsingar.  Nú eru þetta orðnar 6 kata sem ég er búinn að skrifa lýsingar á, en þær eru að finna á síðunni Kata.  Það er fínt að fara yfir þessar lýsingar og læra ganginn í kata en til þess að læra réttan takt, þá er betra að fara í tíma þar sem við komandi kata er kennd.  

Skrifað 12.mars 2006
-----------------------------------
Ja nú er maður stoltur af unglingunum í félaginu.  Við vorum að klára unglingamótið í kata síðasta sunnudag og krakkarnir stóðu sig frábærlega.  Það voru um 30 keppendur sem mættu fyrir okkar hönd og var það mjög glæsilegur hópur á að líta sem skilaði okkur í annað sætið með 17 stig, 1 gull, 1 silfur og 6 brons.  Þessi mót eru orðin mjög sterk og gaman að fylgjast með krökkunum gera kata, en um leið er orðið mjög erfitt að dæma í þessum aldurshópum því margir keppendur eru orðnir mjög sterkir og þeir elstu jafnvel farnir að keppa á fullorðinsmótum.  

Ef ég horfi yfir bæði barna og unglingamótin, þá voru þetta um 60 keppendur frá okkur á þessum tveimur mótum sem æfa í um 6 mismunandi hópum svo það hefur tekið tíma fyrir okkur þjálfara og stjórnendur í félaginu að koma þessu öllu saman.  Það sem gerir þetta starf í breiðabliki svo auðvelt eru allur sá fjöldi sem er tilbúinn að koma að þessum málum.  Í tengslum við eitt mót þá þurfum við þjálfara, liðsstjóra, starfsmenn og dómara svo dæmið gangi upp.  Þetta starf ber að þakka því án allra þeirra sjálfboðaliða sem við höfum aðgang að, þá myndi starf sem þetta ekki ganga upp.  

Ég skoðaði aðeins árangur breiðabliks á síðustu árum og er það mjög jákvætt að sjá þróunina hjá okkur.  Ég setti þessa þróun upp í töflu hér fyrir neðan til að bera þetta saman.  Eins og sjá má í þessari töflu þá er stígandi í þessu hjá okkur mjög jákvæður.  

 

2002

2003

2004

2005

2006

Shotokan mót

0 stig

34 stig af 114 - 2.sæti

52 stig af 110 - 1.sæti

55 stig af 118 - 1.sæti

áætlað nóv 2006

UM í kumite

0 stig

0 stig

0 stig

6 stig af 107 - 5.sæti

áætlað okt 2006

UM í kata

0 stig

0 stig

4 stig af 70 - 4 sæti

0 stig

17 stig af 82 - 2.sæti

Barnameistaramót

0 stig

0 stig

6 stig af 78 - 4 sæti

8 stig af 72 - 6.sæti

13 stig af 72 - 3.sæti

Næsta verkefni okkar í deildinni er að undirbúa okkur fyrir ÍM í kata sem fer fram 1.apríl næstkomandi sem og gráðanir sem verða í apríl, en þá mun Sensei okkar, M. Kawasoe, koma í heimsókn og halda æfingabúðir hjá SKSÍ.

Skrifað 6.mars 2006
-----------------------------------
Það er gaman í karate þessa dagana þar sem rosalega góður kraftur er hjá okkur í breiðablik, vel mætt á æfingar og vel tekið á því.  Núna erum við að undirbúa unglingana okkar fyrir unglingameistaramótið í kata sem fer fram í byrjun mars en það stefnir í góða þátttöku frá okkur.  Unglingarnir eru að leggja mikið á sig og hafa mætt vel á æfingar.  Þessar æfingar eiga eftir að skila okkur betri karateka því æfing í kata er jú einnig æfing í kihon.  Ég hef ávalt haft þá skoðun að það þurfi að vera jafnvægi á milli þeirra þriggja þátta sem karate byggist á, kihon, kata og kumite.  Ekki eigi að taka einn þátt út úr og einblína á hann þar sem þá raskast jafnvægið.  Flest allir karatemenn sem ég hef kynnst í gegnum tíðina og hafa skarað fram úr í keppnum í kata eða kumite hafa nær undantekningarlaust verið mjög góðir í öðrum þáttum karate.  Góður karateka getur keppt í kumite og kata ásamt því að geta sýnt öflugt og sterkt kihon.  Það er síðan ákvörðun hvers og eins hvort hann taki þátt í keppnum eða ekki, það fer einnig eftir áhuga einstakra karateka.  Ekki má gleyma þeim mikla fjölda karateka sem vilja æfa karate án þess að vera með keppni í huga, það ber að virða. Engu að síður þá verða allir nemendur að æfa bæði kata og kumite samhliða kihon því karateka þurfa að sýna þessa þætti við hverja gráðun.  

Að taka þátt í keppni er jákvæður hlutur, setur nemendum markmið og hjálpar þeim að styrkja sig í karate.  Auk þess eykur það sjálfstraust nemenda þegar þeir koma fram í keppnum.  Ég hef alltaf verið hlynntur því að taka þátt í keppnum og sést það m.a. að ég er ennþá að taka þátt í íslandsmeistarmótinu í kata, læt kumite reyndar vera þar sem ég er yfirleitt dómari á þeim mótum.  

Við sem erum að kenna í breiðablik erum sammála um að halda jafnvægi á milli kihon, kata og kumite hvort sem við erum að horfa til keppni eða ekki.  Okkar nemendur eiga að geta sýnt gott kihon, kraftmikla kata og árangursríkt kumite.  Karatetæknir eiga að virka, þær eiga að sýna fram á kraft og ákveðni, það er ekki nóg að hafa karatetæknir tæknilega réttar ef það er engin virkni þar á bakvið.  Þetta á sérstaklega við þegar karateka er kominn með 5.kyu eða 4.kyu, þá er farið að gera meiri kröfur um virkni í tæknum.  

Skrifað 23.febrúar 2006
-----------------------------------

Á sunnudaginn síðasta var meistaramót barna í kata og sendum við yfir 30 keppendur á það mót.  Ég er rosalegar stoltur af krökkunum því þau stóðu sig mjög vel.  Ég er ánægður með allan þann fjölda af krökkum sem komu til að keppa, mörg þeirra í fyrsta sinn og öll gerðu þau það sem fyrir þeim var lagt, að gera sitt besta.  Skemmtilegast þótti mér að fylgjast með hópkata barna 11-12 ára þar sem 16 lið mætti og þar af 4 frá okkur, skemmst er frá því að segja að öll komust þau í úrslit sem var mjög ánægjulegt.  Í heildina fengum við 6 verðlaun og þar af einn meistaratitil.  Ég læt mynd fylgja með sem sýnir verðlaunahafana ásamt Indriða formanni og okkur dómarana, Helga, Einar, Ásdísi og Magga, en fleiri myndir af mótinu sem og frá karatedeild breiðabliks er að finna á www.123.is/karate, kíkið endilega þangað.  

Skrifað 7.febrúar 2006
-----------------------------------

Það er orðið langt síðan ég skrifaði síðast þrátt fyrir fögur orð um betrumbætur.  Þessa dagana erum við í Breiðabliki að leggja áherslu á kata þar sem framundan er meistaramót barna og síðan unglinga.  Unglingahóparnir eru að leggja nokkuð mikið á sig þessa dagana enda komin mörg hver með mjög flottar hreyfingar þar sem vel sést líkamsbeiting í einstökum tæknum.  Það er í takt við þær áherslur sem við höfum verið með í kennslu og er það ánægjulegt.  Einnig er skemmtilegt hvað margir taka þátt í mótinu frá okkur enda er þátttaka í keppnum góð reynsla fyrir alla aðila.  Að sjálfsögðu vonast ég eftir góðum árangri en umfram allt er mest áríðandi að keppendur komi sáttir út af vellinum, þá er árangrinum náð.  

Í byrjendakennslu þá ræddi ég um kata, en hér á síðunni er linkur inn á lýsingar á 4 fyrstu kata sem við lærum, Kihon kata, Heian shodan, Heian nidan og Heian.  Hér er linkurinn

Skrifað 1.febrúar 2006
-----------------------------------

Ég er byrjaður á að setja upp síður til að sýna grunntæknir í karate ásamt því að setja upp hvað það sé sem byrjendur þurfi að standa klár á.  Síðurnar eru ekki fullkláraðar en ég vil endilega að þið sendið mér línur um hvernig ykkur líkar ásamt því hvað það sé sem þið teljið að megi bæta.  Ég vona að myndgæðin verði í lagi en allavega er ég þokkalega sáttur við þetta, svona til að byrja með.

Hér eru nokkrar myndir sem ég lét taka þegar ég var að setja þetta upp, fleiri eru inn á síðunum.  
     

Tenglar inn á síðuna eru;  ByrjendurGrunntæknir

Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst; helgi@helgi.net

Skrifað 25.október 2005.
-----------------------------------

Ef þið hafið ábendingar fyrir mig varðandi þessa síðu, þá endilega látið mig vita.  Ég hef reyndar aðlagað netfangið mitt á síðunni þannig að ekki er hægt að smella á það til að senda mér tölvupóst, þar sem ég var farinn að fá svo mikið af ruslpósti inn á netfangið mitt;  Ég hef sett upp síðu með fyrstu atriðunum sem ég hef fengið spurningar um, ég mun reyna að bæta við síðuna eftir bestu getu.

Ef eitthvað er óljóst varðandi gráðunarkröfurnar eða að þið viljið spyrja um einstök atriði, þá endilega látið mig vita og ég mun svara því hér á síðunni.  

Eldri færslur

Netfang mitt; helgijo (hja) gmail.com (ekkert bil)

Heimsóknir: Site Meter

Síðast breytt: 08 okt. 2009